top of page

Ég heiti Kristín Anna Kristjánsdóttir og mun ég útskrifast vorið 2017 eftir þriggja ára sérnám í grafískri hönnun frá Myndlistaskólanum á Akureyri. Eftir þrjú góð ár í skólanum geng ég út með fullan faðm af þekkingu, áhuga og krafti fyrir komandi tíð. Það sem heillar mig í hönnun er að miðla upplýsingum til áhorfenda með sjónrænni, fágaðri textavinnu og myndverki.

Ég hef mikinn áhuga á að vinna með alls kyns listfrom, svo sem ljósmyndun og myndvinnslu. Allt sem viðkemur grafískri hönnun vekur áhuga minn og er mér endalaus uppspretta og farvegur. 

bottom of page